21. maí 2023 í Guðmundarlundi

Bikarmót Breiðabliks

XCO fjallahjólreiðar

Grunnupplýsingar

Mótið

Bikarmót Breiðabliks í ólympískum fjallahjólreiðum verður haldið í Guðmundarlundi í Kópavogi sunnudaginn, 21. maí 2022.

Um er að ræða braut sem liggur meðal annars um skógræktarsvæði skógræktar Kópavogs og er brautin sett upp í samráði og samvinnu við skógræktina. Í aðdraganda mótsins eru hjólarar beðnir um að fara varlega þegar þeir fara um skóginn í Guðmundarlundi þar sem hún liggur í gegnum frisbígolfvöll. Vinsamlegast takið því tillit til annarra sem eiga þar leið um. Þessum hluta brautarinnar verður síðan lokað á sjálfum keppnisdegi.

Dómarar

Björgvin Tómasson

Keppnisgjald

A, B og Master 35+ flokkar

Skráningargjald er 4.000 kr. Hækkar í 7.000 kr. kl. 12:00, fimmtudaginn 18. maí 2023. Skráningu lýkur kl. 12:00, föstudaginn 19. maí 2023.

Junior og U-flokkar

Skráningargjald er 3.000 kr. Hækkar í 5.000 kr. kl. 12:00, fimmtudaginn 18. maí 2023. Skráningu lýkur kl. 12:00, föstudaginn 19. maí 2023.

Tengiliðir

Mótsstjóri: 

Andri Már Helgason, 859-3215

Mótanefnd:

Hákon Davíð Halldórsson, 898-2178

María Sæm Bjarkardóttir, 864-9640

Viðburður á Facebook

Tilkynningar og aðrar upplýsingar um mótið verða settar inn á viðburðarsíðu mótsins á Facebook.

Keppendum er því bent á að mikilvægt er að merkja sig sem "Going" í þann viðburð þannig að þeir séu öryggir um að fá tilkynningar frá mótanefnd.

Skráning í mót

Skráning í mótið

Skráning í mótið fer fram í gegnum skráningarkerfi HRÍ.

Flokkar og hringjafjöldi

Karlar

A flokkur
5 hringir

B flokkur
4 hringir

Master 35+
4 hringir

U11
2 hringir - Minni hringur

U13
3 hringir - Minni hringur

U15
2 hringir

U17
3 hringir

Junior
4 hringir

Konur

A flokkur
4 hringir

B flokkur
3 hringir

Master 35+
3 hringir

U11
2 hringir - Minni hringur

U13
3 hringir - Minni hringur

U15
2 hringir

U17
3 hringir

Junior
3 hringir

Brautarskoðun

Boðið verður upp á brautarskoðun fyrir mótsdag og er gert ráð fyrir að þátttakendur hittist við upphafspunkt brautarinnar fyrir framan Guðmundarlund.

Brautarskoðun verður á eftirfarandi dagsetningum:

Nánari upplýsingar má einnig sjá á viðburðarsíðu keppninnar á Facebook.

Grill eftir keppni

Eftir keppnir ætlar Breiðablik að bjóða upp á grillveislu fyrir keppendur við grillsvæðið inni í Guðmundarlundi.

Í boði verða pylsur og gos.

Hlökkum til að sjá keppendur eftir keppnina.

Dagskrá á mótsdag

Keppnisfundur U flokka og Junior
09:50

Drengir

Ræsing U11 og  U13
10:00

Ræsing U15, U17 og Junior
10:06

Stúlkur

Ræsing U11 og U13
10:03

Ræsing U15, U17 og Junior
10:09

Verðlaunaafhending
11:45

Keppnisfundur A, B og Master 35+
11:20

Karlar

Ræsing A,
11:30

Ræsing B og Masters 35+
11:33


Konur

Ræsing A
11:36

Ræsing B og Masters 35+
11:39


Verðlaunaafhending
13:30

Keppnisgögn og afhending

Númer og tímatökuflaga

Keppnisnúmer skal festa á stýri með þar til gerðum plastbenslum.

Tímaflögu skal festa á gaffal, þeim megin sem bremsudiskur er ekki, með þar til gerðum plastbenslum

Keppendur án tímaflögu eða rangt festa fá ekki tíma.

Afhending keppnisgagna

Fer fram í húsnæði Skógræktar Kópavogs fyrir keppnir þann 21. maí 2023

Keppnisgögn

Nýtt fyrirkomulag á tímatökuflögum

HRÍ hefur breytt fyrirkomulagi varðandi tímatökur.

Það er nú á ábyrgð keppenda að verða sér úti um gilda tímatökuflögu í gegnum Tímatöku ehf. Sjá tilkynningu frá HRÍ hér til hægri. ->

Vinsamlegast fylgið því þeim leiðbeiningum sem HRÍ gefur út.



Í sumar verður gerð sú breyting að leigugjald fyrir tímatökuflögu er ekki lengur inni í keppnisgjöldum og sjá keppendur sjálfir um að útvega sér flögur fyrir allar keppnir.

Þrjár leiðir verða í boði. Eignaflaga, sumarleiga og leiga fyrir stakt mót. Hver velur hvað hentar út frá því hversu mörgum keppnum ætlunin er að taka þátt í. Hægt verður að leigja eða kaupa flögur inni á netskraning.is/flogur
og verður mótunum bætt þar inn þegar skráningar opna.

Á mótunum í sumar munu allir þurfa að athuga virkni flögunnar til að fullvissa um hvort skráningar séu réttar fyrir start. Þetta verður gert á þar til gerðu svæði nálægt startsvæðinu. Þetta er mikilvægt þegar flögur eru komnar í hendur margra og ekki eins auðvelt að fylgjast með batterýstöðu og hvort þær hafi virk leyfi.

Á mjög fjölmennum mótum kann að vera að annar búnaður verði notaður sem les ekki þessar flögur en þá verður flögum útdeilt eins og verið hefur. Flögurnar sem um ræðir verða í.þ.m. notaðar á öllum bikar- og Íslandsmótum HRÍ í RR, TT, Criterium og DH. Einnig er hægt að nota þær í keppni víða erlendis.

Tilkynning tekin af vef HRÍ -> Leiga tímatökuflaga. Nýtt fyrirkomulag. | Hjólreiðasamband Íslands (hri.is) 


Keppnisreglur

Um keppnina gilda reglur HRÍ.

Keppendur eru hvattir til að kynna sér reglur fyrir keppni til að koma í veg fyrir misskilning eða atvik sem geta leitt til brottvikningu úr keppninni.

Sjá nánar á vef HRÍ

Brautin, staðreyndir og ítarupplýsingar

Fyrirvari

Í gegnum skóginn í Guðmundarlundi getur verið að einhver breyting verði á leiðinni fyrir mótsdag.

Ábending

Vitað er til þess að hestafólk leiti á stíginn að sunnan- og austanverðu. Vinsamlegast farið því að öllu með gát ef brautin er prófuð í aðdraganda mótsins. Eins er mikilvægt að fara varlega í gegnum skóginn þar sem hjóla þarf yfir frisbígolf braut.

Braut fyrir A, B, Masters 35+, U15, U17 og Junior

Braut fyrir U11 og U13

Keppnissvæði

Bílastæði

Bílastæði eru af skornum skammti við Guðmundarlund. Við mælum því með því að keppendur og gestir leggji við Kórinn.

Aðkoma að Guðmundarlundi

Að ósk Hestamannafélagsins Spretts biðjum við keppendur og aðra sem eiga erindi upp í Guðmundarlund á keppnisdag að keyra um Þingmannaleið og Heimsenda í átt að Guðmundarlundi til að takmarka umferð um svæði hestamannafélagsins.

Þjónustusvæði

Í brautinni verður boðið upp á þjónustusvæði við rásmark þar sem hægt er að geyma næringu og gera við hjól ef þess gerist þörf á meðan keppni stendur.

Vekjum einnig athygli á því að aðstoðarfólk keppenda þarf að vera merkt á áberandi hátt skv. reglum HRÍ.

Ef nýta á þjónustusvæðið mælum við sterklega með því að keppendur lesi vel kafla 5.2 í reglum HRÍ um XCO og XCM fjallahjólreiðar til að koma í veg fyrir óþarfa brottvísun vegna brota á þeim reglum.

Öryggismál

Ef alvarlegt slys ber að höndum skal hringja í 112, svo láta keppnistjóra vita í síma. Sjá tengiliðaupplýsingar hér að ofan.

Sjálfboðaliðar eru staðsettir víðsvegar í brautinni og á nokkrum stöðum eru tiltækir sjúkrakassar fyrir minniháttar óhöpp.

Ef um önnur atvik er að ræða eða keppendum vantar aðstoð skal hringja beint í keppnisstjóra.