19. maí 2022 í Guðmundarlundi

Bikarmót Breiðabliks

XCO fjallahjólreiðar



Grunnupplýsingar

Mótið

Bikarmót Breiðabliks í ólympískum fjallahjólreiðum verður haldið í Guðmundarlundi í Kópavogi fimmtudaginn, 19. maí 2022.

Um er að ræða braut sem liggur meðal annars um skógræktarsvæði skógræktar Kópavogs og er brautin sett upp í samráði og samvinnu við skógræktina. Í aðdraganda mótsins eru hjólarar beðnir um að fara varlega þegar þeir fara um skóginn í Guðmundarlundi þar sem hún liggur í gegnum frisbígolfvöll. Vinsamlegast takið því tillit til annarra sem eiga þar leið um. Þessum hluta brautarinnar verður síðan lokað á sjálfum keppnisdegi.

Dómarar

Björgvin Tómasson

Keppnisgjald

A, B og Master 35+ flokkar

Skráningargjald er 4.000 kr. Hækkar í 7.000 kr. kl. 12:00, þriðjudaginn 17. maí 2022. Skráningu lýkur kl. 12:00, miðvikudaginn 18. maí 2022.

Junior og U-flokkar

Skráningargjald er 3.000 kr. Hækkar í 5.000 kr. kl. 12:00, þriðjudaginn 17. maí 2022. Skráningu lýkur kl. 12:00, miðvikudaginn 18. maí 2022.

Tengiliðir

Mótsstjóri:

Halldór Valgeirsson, 896-7164, halldor.valgeirsson@gmail.com

Mótanefnd:

Anna Kristín Sigursteinsdóttir, 690-8833

Andri Már Helgason, 859-3215

Hákon Davíð Halldórsson, 898-2178

María Sæm Bjarkardóttir, 864-9640

Sveinn Jónsson, 899-2572

Viðburður á Facebook

Tilkynningar og aðrar upplýsingar um mótið verða settar inn á viðburðarsíðu mótsins á Facebook.

Keppendum er því bent á að mikilvægt er að merkja sig sem "Going" í þann viðburð þannig að þeir séu öryggir um að fá tilkynningar frá mótanefnd.

Skráning í mót

Skráning í mótið

Skráning í mótið fer fram í gegnum skráningarkerfi HRÍ.

Flokkar og hringjafjöldi

Karlar

A flokkur
5 hringir

B flokkur
4 hringir

Master 35+
4 hringir

U11
2 hringir - Minni hringur

U13
3 hringir - Minni hringur

U15
2 hring
ir

U17
3 hringir

Junior
4 hringir

Konur

A flokkur
4 hringir

B flokkur
3 hringir

Master 35+
3 hringir

U11
2 hringir - Minni hringur

U13
3 hringir - Minni hringur

U15
2 hringir

U17
3 hringir

Junior
3 hringir

Brautarskoðun

Boðið verður upp á brautarskoðun fyrir mótsdag og er gert ráð fyrir að þátttakendur hittist við upphafspunkt brautarinnar fyrir framan Guðmundarlund.

Brautarskoðun verður á eftirfarandi dagsetningum:

Nánari upplýsingar má einnig sjá á viðburðarsíðu keppninnar á Facebook.

Dagskrá á mótsdag

Keppnisfundur U flokka og Junior
16:50

Drengir

Ræsing U11 og U13
17:00

Ræsing U15, U17 og Junior
17:10

Stúlkur

Ræsing U11 og U13
17:02

Ræsing U15, U17 og Junior
17:12

Verðlaunaafhending
18:45

Keppnisfundur A, B og Master 35+
18:20

Karlar

Ræsing A,
18:30

Ræsing B og Masters 35+
18:3
2


Konur

Ræsing A
18:35

Ræsing B og Masters 35+
18:3
7


Verðlaunaafhending
20:30

Keppnisgögn og afhending

Númer og tímatökuflaga

Keppnisnúmer skal festa á stýri með þar til gerðum plastbenslum.

Tímaflögu skal festa á gaffal, þeim megin sem bremsudiskur er ekki, með þar til gerðum plastbenslum

Keppendur án tímaflögu eða rangt festa fá ekki tíma.

Afhending keppnisgagna

18. maí 2022 kl. 17:00-18:00

Keppnisgögn verða afhent í andyri Smárans, daginn fyrir mótsdag, þ.e. 18. maí 2022.

Keppnisgögn

  • Ein tímatökuflaga á gaffal.

  • Eitt keppnisnúmer til að festa á stýri

  • 5 plastbensl til að festa keppnisnúmer og tímatökuflögu.

Keppnisreglur

Um keppnina gilda reglur HRÍ.

Keppendur eru hvattir til að kynna sér reglur fyrir keppni til að koma í veg fyrir misskilning eða atvik sem geta leitt til brottvikningu úr keppninni.

Sjá nánar á vef HRÍ

Brautin, staðreyndir og ítarupplýsingar

Fyrirvari

Í gegnum skóginn í Guðmundarlundi getur verið að einhver breyting verði á leiðinni fyrir mótsdag.

Ábending

Vitað er til þess að hestafólk leiti á stíginn að sunnan- og austanverðu. Vinsamlegast farið því að öllu með gát ef brautin er prófuð í aðdraganda mótsins. Eins er mikilvægt að fara varlega í gegnum skóginn þar sem hjóla þarf yfir frisbígolf braut.

Braut fyrir A, B, Masters 35+, U15, U17 og Junior

Braut fyrir U11 og U13

Keppnissvæði

Bílastæði

Bílastæði eru af skornum skammti við Guðmundarlund. Við mælum því með því að keppendur og gestir leggji við Kórinn.

Aðkoma að Guðmundarlundi

Að ósk Hestamannafélagsins Spretts biðjum við keppendur og aðra sem eiga erindi upp í Guðmundarlund á keppnisdag að keyra um Þingmannaleið og Heimsenda í átt að Guðmundarlundi til að takmarka umferð um svæði hestamannafélagsins.

Þjónustusvæði

Í brautinni verður boðið upp á þjónustusvæði við hús Skógræktar Kópvogs þar sem hægt er að geyma næringu og gera við hjól ef þess gerist þörf á meðan keppni stendur.

Vekjum einnig athygli á því að aðstoðarfólk keppenda þarf að vera merkt á áberandi hátt skv. reglum HRÍ.

Ef nýta á þjónustusvæðið mælum við sterklega með því að keppendur lesi vel kafla 5.2 í reglum HRÍ um XCO og XCM fjallahjólreiðar til að koma í veg fyrir óþarfa brottvísun vegna brota á þeim reglum.

Öryggismál

Ef alvarlegt slys ber að höndum skal hringja í 112, svo láta keppnistjóra vita í síma. Sjá tengiliðaupplýsingar hér að ofan.

Sjálfboðaliðar eru staðsettir víðsvegar í brautinni og á nokkrum stöðum eru tiltækir sjúkrakassar fyrir minniháttar óhöpp.

Ef um önnur atvik er að ræða eða keppendum vantar aðstoð skal hringja beint í keppnisstjóra.